![]() |
Æskulýðsmiðstöðin
Knellan Fæddist 22.febrúar 1985. |
![]() |
| Til baka | English page |
Við fengum aðstöðu í kjallara gamla skólans okkar, vegna þess að nýr grunnskóli hafði þá verið tekinn í notkun. Þar sáum við um að breyta húsnæðinu í draumastað fyrir okkur og vorum við mjög ánægð með árangurinn. Eftir nokkur ár í kjallaranum fannst okkur samt nauðsynlegt að bæta við plássi og fengu því til umráða eitt herbergi á efri hæðinni sem nú tengist kjallaranum með stigaopi. Nú, árið 1999, sjáum við fram á að geta kannski bætt við öðru herbergi á efri hæðinn, þar sem við ætlum að hafa ballskák og fleira. Knellan hefur verið frá byrjun opin alla virka daga frá 17 - 19 nema á föstudögum en þá er opið frá 20 - 2330. Á hverju ári veljum við Félagsmálatröll Knellunnar. Þá nafnbót hljóta þeir sem eru taldir hafa skarað fram úr í félagslegri virkni og starfi fyrir Knelluna. Í Knellunni eru föst embætti sem við Knellubúar tökum að okkur. Það er ræstingargengið, sem sér um að halda Knellunni hreinni, plötusnúðarnir sem sjá um að hrista okkur og sjoppufélagarnir sem stuðla að því að skemma í okkur tennurnar. Frábærir starfskraftar sem eiga alltaf heiður skilinn. Frá því að Knellan byrjaði höfum við haldið nokkrum venjum í heiðri. Má þar nefna að við pörum okkur oft saman, stráka og stelpur í dansinum og eru þá allir skyldugir að dansa minnst þrjá dansa við óvæntan dansfélaga. Við erum mjög oft með skemmtidagskrá í danshléi og eru það einhverjir valdir hverju sinni til að sjá um þann þátt. Á síðasta balli fyrir jólin koma allir með jólagjafir sem settar eru í einn sjóð og er þar líka sett ein stór og góð gjöf frá Knellunni. Síðan fá allir óvænta jólagjöf og einn heppinn Knellubúi fær síðan gjöfina frá Knellunni. Í Knellunni er algert reykinga-, áfengis- og vímuefnabann og enn í dag hefur verið farið eftir þessu banni. Við, unglingarnir í Knellunni, teljum það sjálfsagðan hlut að blanda ekki saman uppbyggjandi starfsemi í Knellunni og niðurbrjótandi hlutum eins og notkun vímuefna. Knellan okkar er vel búin tækjum til skemmtunar. Við höfum alla þá hluti sem við getum hugsað okkur. Bæjarbúar allir, ráðamenn bæjarins, fyrirtæki staðarins og félagasamtök á Eskifirði hafa styrkt okkur mjög vel og rausnarlega við uppbyggingu félagsmiðstöðvarinnar og allir eru jákvæðir út í þá starfsemi sem þar fer fram. Kjörorð okkar í Knellunni er: "Hressir krakkar kunna að skemmta sér sjálfir" |