Fjöruferðir
Fjaran og fjallasýn:
Ferðaþjónustan í Hólmi býður
upp á skipulagðar stuttar kvöldferðir frá
Hólmi útá fjörur.
Í ferðum þessum gefst fólki kostur á
að kynnast veröld þeirri sem fjaran og nálægð
sjávarins býður upp á.
Frá fjörunum er falleg sýn á fjallahring Hornafjarðar.
Lagt er af stað frá Hólmi á kvöldin kl:
20:00
Ekið er út á fjörurnar og stoppað þar
í um það bil klukkustund, þar geta farþegarnir
gengið um í flæðarmálinu, skoðað
Atlantshafið og notið fersks sjávarloftsins.
Komið er til baka að Hólmi Kl: 21:30-22:00
Best er að bóka ferðirnar fyrirfram.
Verð: 3000 á mann frá
12 ára aldri.
Hálft gjald fyrir 3 til 11ára
Frítt fyrir 0 til 3ára
Lágmarksfjöldi farþega 2.

Til baka