Árið 1951 keyptu hjónin Guðjón Arason og kona hans Margrét Sigurðardóttir jörðina Hólm á Mýrum.
Í byrjun búskapar þeirra byggðu þau nýtt hús á grunni eldra húss sem var frá u.þ.b. 1920.
Í þessu húsi er nú rekin gisting. Árið 1992 keyptu núverandi eigendur jörðina Hólm, en það erum við hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Magnús Guðjónsson.
Frá árinu 1985 höfðum við rekið félagsbú ásamt Margréti og Guðjóni. Árið 2003 hófum við endurbætur á fyrrnefndu húsi með það fyrir augum að reka þar gistingu.
Við endurbyggingu hússins og val húsgagna höfum við reynt að stíla inná tímann frá 1960-1970, og með því jafnframt að skapa stemmingu bóndabæjar frá þeim tíma.
Árið 2005 hófum við svo rekstur ferðaþjónustu hér í Hólmi til viðbótar hefðbundnum búskap.
Árið 2009 opnuðum við svo húsdýragarð.
Og jafnhliða því hófum við endurbætur á gömlu fjósi á staðnum með það fyrir augum að reka þar veitingaaðstöðu. Veitingaraðstaðan í fjósinu var opnuð í ágúst 2010.
Ferðaþjónustan hér í Hólmi er rekin sem fjölskyldufyrirtæki, því auk okkar eru það börnin okkar 3 sem starfa við hana.
En þau heita Arndís Ósk, Birna Jódís og Guðjón Örn.
.
.

 

Eigendurnir Gunna og Maggi

Hólmur á Mýrum


Til baka á aðalsíðu