Húsdýragarðurinn í Hólmi var opnaður í júlí 2009. .
Hann er opin allt árið nema annað sé auglýst.
Í garðinum eru algengustu íslensku húsdýrin ásamt mörgum öðrum.
Má þar finna t.d sauðfé, hesta, kálfa, geitur, grís,ketti, ýmsar kanínutegundir, naggrísi, íslenskar hænur, dverghænur,lynghænur, fashana, ýmsar dúfnategundir, gæsir, og endur.
Mismikið er af tegundum eftir því hvaða árstími er. En þegar vorar kviknar líf í garðinum. Þá iðar allt af ungviðum af ýmsum gerðum.
Hjólastóla aðgengi er í garðinum. Ef gist er á vetrartíma er frítt í húsdýragarðinn,
og gestir geta tekið þátt í að fóðra sauðfé og önnur dýr á bænum.
Opnunartími er frá 10 til 17.
Húsdýragarðurinn á facebook 