Um Stafafell:
Stafafell í Lóni hefur verið kirkjustaður frá fornu fari. Lón er
með Eystra-og Vestra-Horn sem útverði sveitarinnar.
Inn til landsins liggja Stafafellsfjöll,sem rómuð eru fyrir lita-
dýrð og andstæður í náttúrufari.
Að Stafafelli er rekin umfangsmikil ferðaþjónusta.
Gistiaðstaða er fyrir allt að fjörutíu manns,í sumarbústöðum
og sérhúsi.Tjaldstæði eru með góðri snyrtiaðstöðu.