Dagsgöngur:
Gönguleiðir eru margar og vel kortlagðar. Út frá Stafafelli eru skipulagðar
mislangar gönguferðir. Boðið er upp á skipulagðar dagsgöngur með ýmsum
tilbrigðum. Lagt er af stað í gönguferðir frá þjónustusvæðum.
Áhersla er lögð á fræðslu um sögu og náttúrufar staðarins, ásamt því að
bjóða upp á göngur með heilsueflingu og skemmtun að markmiði.
Göngurnar eru miserfiðar,frá því að vera við allra hæfi í að vera tindaklifur,
sem reynir á þrek og úthald.
Gönguleiðakort yfir svæðið er fáanlegt á staðnum.