Grunnriss að lýðræðisreglum fyrir þjóð í klípu.

 

• Lýðræðislega Lýðveldið Ísland er fullveðja sjálfstætt ríki.Tilvist lýðveldisins byggist á virðingu fyrir öllum mönnum, friði, jafnrétti, frelsi og síauknum mannréttindum.

• Á Íslandi er ekki her.

• Allir sem íslenskt ríkisfang hafa bera sömu skyldur og hafa sömu réttindi..

• Allir fullveðja ríkisborgarar landsins njóta kosningaréttar til jafns. Gæta skal þó að því að minnihlutarhópar og dreifðar byggðir eigi sér ávallt fulltrúa á Alþingi.

• Allar embættismanneskjur ríkisvaldsins skulu valdar í beinum leynilegum kosningum sem haldnar eru með reglulegu millibili, til að tryggja ábyrgð, skilvirkni og einlægni.

• Tryggja skal rétt allra til framboðs með sanngjörnum lágmarksskilyrðum. (ath! útiloka þarf ægivald flokkanna)

• Löggjafarvald - framkvæmdarvald og dómsvald skal vera tryggilega aðgreint þannig að enginn geti valist í embætti í meira en einu þeirra þriggja samtímis.

• Embættismanneskjur geta ekki valið aðrar embættismanneskjur nema með samþykki þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu.

• Setja skal í lög (eða beint hér) sanngjörn skilyrði fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni sem hana varða og ekki brjóta í bága við grunnlögin. Þar á meðal, stjórnar- og þingslit.

• Kosið skal í beinni og sértækri þjóðaratkvæðagreiðslu um gildstöku grunnlaga sem og breytingar á þeim. Alþingi má gera tillögur að breytingum á grunnlögum.

• Náttúruauðlindir Íslands á landi, i lofti og til sjávar ásamt nýtingarrétti á þeim eru ævarandi eign þjóðarinnar. Vernd og nýting þeirra ber ætíð að miðast við rétt komandi kynslóða til að taka við þeim óskemmdum.

 

Um mig: Búfræðingur Hólum 1970 BA þjóðfræði Háskólanum í Lundi 1985 Sjómaður, vélstjóri, kokkur, myndlistarmaður, leiðbeinandi , félagsmálafulltrúi, framkvæmdastjóri Félagsheimilisins Herðabreiðar á Seyðisfirði, fjölbreytt félagsstarf og forstöðumaður Tækniminjasafns Austurlands í fullu starfi frá 2002.